Nánar:
Ég heiti Jóhann Helgi og er sveitastrákur frá Hornafirði.
Ég hef verið að læra þjálfun og starfað sem þjálfari hjá HundaAkademíunni síðan 2021
Í gegnum tíðina hefur alltaf verið mikið um hunda í kringum mig og hafa verið fleiri hundar hluti af fjölskyldunni en ég hef tölu á. Þetta voru þó nánast “hundar með hlutverk” s.s. smalahundar, sækihundar og minkaveiðihundar.
Núna á ég Border Collie – Schäfer blending sem heitir Askur.
Ég hef bakgrunn í “hefðbundinni” hundaþjálfun en eftir að sá alla kostina og árangurinn við jákvæða hundaþjálfun, þá kom ekki annað til greina en að tileinka mér þær aðferðir og nota þær eingöngu við þjálfun á hundum í kringum mig. Mig langar að fleiri tileinki sér jákvæðari og nútímalegri þjálfun á hundunum sínum. Helstu áhugamálin mín tengd þjálfun eru hundar með hlutverk t.d. smala- og veiðihundar, hlýðni og Nosework.