GrunnnámskeiðGamalt

Grunnnámskeið fyrir hvolpa og unghunda

Næstu námskeið

 

This product is currently out of stock and unavailable.

SKU: N/A Category:

Description

Námskeiðið er í  í 6 vikur tvisvar í viku. Annað hvort mánudaga/miðvikudaga eða þriðjudaga/fimmtudaga.  Einnig kemur fyrir að við höfum námskeið á dagtíma og um helgar.

Grunnnámskeiðið er það námskeið sem er bæði fyrir hvolpa og unghunda.

Mælum með að byrja sem fyrst með hvolpa eða frá 10/12 vikna aldri eða um leið og þið getið.

Allar tegundir hafa gott af því að fara á námskeið hjá okkur, bæði smáhunda- og stórhundategundir. Allir hundar fá sitt rými til að vinna á með sínu fólki.

Öll fjölskyldan er velkomin með á námskeiðið.

Kennt er með jákvæðum aðferðum sem byggjast á nýjustu rannsóknum um atferli hunda.

Til þess að fá afslátt af hundaleyfisgjöldum hjá þeim bæjarfélögum sem bjóða upp á slíkt þarf að hafa 80% mætingu og klára námskeiðið með bóklegu og verklegu prófi.

Á námskeiðinu lærir þú meðal annars

  • að lesa merkjamál hunda, hvernig þeir tjá sig við okkur og við aðra hunda. Hvað er eðlilegur leikur og hvað er það ekki.
  • að þekkja stresseinkenni, hvað stressar og hvernig þú getur komið í veg fyrir stress.
  • inn á hvernig hundar læra, hvernig þeir lesa okkur, sem sagt atferli hunda.
  • að vinna með hundinum þínum svo honum finnist skemmtilegast í heimi að vinna með þér.
  • hvernig þú styrkir jákvæða hegðun og hvernig þú kemur í veg fyrir óæskilega hegðun.
  • að nota klikker (innifalinn) sem þjálfunartæki og lærir að nota lokka, móta og grípa aðferðirnar.

Þú gætir hreinlega kynnst hundinum þínum upp á nýtt

Á námskeiðinu kennir þú hundinum þínum

  • að hlusta á fólkið sitt, bæði þig og aðra í fjölskyldunni sem vilja vera með og þjálfa hundinn.
  • að gera þessar grunnæfingar sem eru nauðsynlegar til að hversdagslífið verði þægilegt.
  • að slappa af í áreiti! Það er svo mikilvægt að hundurinn geti slappað af þó það sé gaman og þó það séu aðrir hundar nálægt honum.
  • að vera í áreiti og geta samt sem áður hlustað og gert æfingar.
  • að læra að læra, hundar sem hafa aldrei lært neitt þurfa sérstaklega að æfa heilann sinn í að læra, það er hægt að kenna gömlum hundi að sitja svo að segja.
  • að láta hluti vera eða bíða eftir lausnarorði. Sumt er alltaf bannað, það lærir hundurinn án þess að við þurfum stöðugt að segja bannorðið. Aðrir hlutir sem er meira óljóst hvort má eða ekki, þar lærir hann á bannorð.
  • að flaðra ekki upp á fólk.
  • að sýna kurteisishegðun við ýmislegt. Sem dæmi að í stað þess að væla/gelta/krafsa/glefsa eða haga sér á annan átt illa þegar hann „vill eitthvað“ þá lærir hann að vera rólegur og biðja fallega um „leyfi til að fá“.
  • að nota dót sem verðlaun og þá að geta gefið þér dótið þegar þú biður um það.
  • að labba fallega í taumgöngu.
  • að sjálfur koma inn við hæl og labba þar.

Additional information

Dagsetningar

Grunn 13. júní, Grunn 28. júní, Grunn 8. ágúst