Nánar:
Ég er fædd árið 1979, og hef mest átt Border Collie hunda í gegnum árin. En núna á ég Jack Russel tík sem er svo sannarlega öðruvísi krefjandi.
Ég er uppalin í sveit og með allskonar dýr í kringum mig.
Við fjölskyldan fluttum til Svíþjóðar þegar ég var 14 ára og kláraði ég grunnskólann þar. Svo fór ég í fjölbrautaskóla sem er landbúnaðarskóli, á hestabraut. Skólinn heitir Lillerud.
Eftir skólann fór ég á vit ævintýranna til Noregs og vann á hóteli í 2 ár og fór svo í Ferðaþjónustuskóla sem heitir Næringsakademíet. Eftir þann skóla fékk ég frábæra vinnu við að mjólka geitur í fjöllunum við Ålesund á vesturströnd Noregs. Það var þar sem ég eignaðist minn fyrsta hund Tommy Border Collie. Þá kom áhuginn á hundaþjálfun og byrjaði ég að lesa allt sem ég komst yfir um hunda.
Ég lærði hundaþjálfun í virtum skóla sem heitir Hundenshus og er í Stockholm, Sviþjóð og útskrifaðist 5 júní 2012. Þetta er stæðsti hundaskólinn á Norðulöndum og er samþykktur af sænska menntamálaráðaneytinu.
Innifalið í náminu er meðal annars;
Hversdagshlýðni. Hvolpaæfingar. Klikkerþjálfun. Jákvæðar aðferðir í þjálfun. Hvolpar og þarfir þeirra. Fullorðnir hundar og þarfir þeirra. Hlýðni fyrir hvolpa og fullorðna hunda og muninn á því. Stress. Vinna með hundinum. Heilsa. Næring. Sjúkdómar. Merkjamál hunda. Hundategundir. Sálfræði
Nóvember 2014 útskrifaðist ég úr framhaldsnámi í hundaskólanum í Svíþjóð en það nám er víðamikið og heitir á sænsku Hundpsykolog (hundasálfræðingur eða hundaatferlisfræðingur). Þetta nám er sértsakt nám til að takast á við vandamál sem upp koma í hundum. Svo sem hræðsla, árásargirni, stress, gelt og önnur hegðunar-vandamál sem og atferli hunda. En venjulegt hundaþjálfaranám fer ekki svo djúpt í þessi atriði og því mikilvægt ef hundurinn er með vandamál að sækja aðstoð hundaatferlisfræðings.
Önnur námskeið/reynsla.
Ég starfaði í stjórn vinnuhundadeildar HRFÍ. ( Hundaræktafélag Íslands) í 2 ár
2 júní 2012 – Per Jensen – Hundens språk og tankar. (tungumál og hugsun hundsins)
3 júní 2012 – Björn Forkman – Persónuleiki hundsins
13 okt. 2012 – Frá hvolpi til vandamálahunds, helgi um ýmislegt tengt því að koma í veg fyrir vandamál í framtíðinni.
BAT fyrir hunda með árásargirni, kvíða eða hræðslu – helgar námskeið á Íslandi
Do as I do – helgarnámskeið á Íslandi
2017 – NoseWork þjálfara nám.
2022 – Nordic Animal Behavior Conference